Jæja ný færsla hefur fengið að bíða smá þar sem ég varð auðvitað að enda síðust lyfjameðferð með smá veseni
Brunnurinn minn hætti að virka á loka degi og þurfti því að setja central í mig og ekki beint á besta stað í hálsinn á mér þannig að ég leit út eins og Tóti tölvikarl með tvær stórar plastleiðslur standandi út úr hálsinum á mér. Tristan litli fer bráðum að halda að frændi hans sé að breytast í vélmenni. Segir alltaf að hárið á mér hafi dotti af ofan í holu
En ég er kominn með nýjan brunn og er búinn að vera handlama síðann en er allur að koma til.
Annars var ég að fá gleðifréttir frá Jakobi krabbameinslækni að það æxlisvísarnir í blóðinu væru komnir í 0,0 þannig meðferðin gengur vel. ég er líka kominn með fulla sjón sem er ÆÐISLEGT!!! ómetanlegt að sjá aftur. Þegar ég var í fyrstu meðferðinni þurfti ég að biðja Önnu að hækka í sjónvarpinu til þess að ég gæti hlustað á það þar sem ég sá ekki á það en nú er ég kominn með betri sjón en ég var með áður en ég veiktist þannig maður hefur ástæðu til að gleðjast.
En nú langar mér að deila smá hugleiðingu með ykkur sem hefur verið að gerjast í mér síðan 14.maí. Málið er að ég er vinstri handar ekki örvhentur þar sem ég veit ekki hvað það orð þýðir og það sem betra er vísindavefurinn veit það ekki heldur nákvæmlega: http://visindavefur.hi.is/svar.asp?id=3632 og Guðrún Soffía grunnskólakennarinn minn til nokkura ára og síðar Lára systir mín sögðu mér báðar að ég ætti ekki að nota orð sem ég vissi ekki hvað þýddi því annars gæti ég farið að nota þau vitlausan hátt!
Málið er að í daglegu tali tölum við um rétthenda og örvhenda og þannig gefum við til kynna að þeir sem nota vinstri hendina meira séu í raun að nota vitlausa hendi. Ef við ætlum að fela okkur á bakvið þá staðreynd að það sé í lagi að segja þetta þar sem meirihluti fólks notar hægri höndina á sér þá gætum við sagt að við á Íslandi keyrðum réttu meginn en á bretlandi vitlausu meginn eða þeir sem trúa á Jesú væru rétt trúa en aðrir rangtrúa þar sem stærstu trúarhópar heims trúa á Jesú Krist. Ég efast um að það yrði samþykkt í dag og tala þannig.
Það er ekki að ástæðulausu sem ég nefni þetta þar sem ég upplifði það í grunnskóla að vera strítt af kennurum og nemendum fyrir að eiga erfitt með að skrifa á töflu þar sem ég strokaðu út jafn óðum það sem ég skrifaðu og fyrsti handavinnukennarinn minn í saumum neitaði að kenna mér að prjóna þar sem það væri ekki hægt að kenna vinstrihandarfólki (hún sagði auðvtiað örvhentum).
Það sem sorglegra er og hefur alltaf vakið hjá mér reiði var sú meðferð sem Magnús afi minn þurfti að þola í skóla en hann var vinstri handar og var höndin á honum bundin fyrir aftan bak og hann neyddur til að nota hægri höndina á sér. Á vissum tímum í sögunni hefur fólk verði ásakað um að vera vegum djöfulsins og verið tekið af lífi fyrir það eitt að nota ekki hægri höndina til vinnu og verka.
Ég bið þig um að hugsa þig tvisvar um áður en þú notar orðið örvhentur í framtíðinni og minni þig á að maður á ekki að nota orð sem maður veit ekki hvað þýðir.
Ingi Þór vintri handar